Bókaskráning - Litlir miðar
Bókmenntahugtök fyrir byrjendur
Einfaldar skilgreiningar bókmenntahugtakanna boðskapur, sögupersóna, söguþráður og sögusvið á spjöldum.
Fjögur spjöld (A4)
Búkolla - Heildstætt verkefni
Auk þess fylgir lengri, myndskreytt útgáfa af sögunni á PDF formi sem einnig er hægt að nálgast sem flettibók HÉR.
Læsi,bókmenntarýni; sögupersónur, sögutími, sögusvið, ritun, framsögn, stafróf, nafnorð; sérnöfn, samnöfn og fallbeyging, virk hlustun, skrift - Fyrirmyndarmálsgreinar
Bekkjarþrautin og Stjörnuverkefnið
Fyrirsagnir:
Bekkjarþrautin - tilvalið að stækka og hengja upp krossgátu, sudoku, orðarugl, stærðfræðiþraut eða hvaðeina sem fær nemendur til að vinna saman að lausninni. Ein á viku / ein á dag.
Stjörnuverkefni: Verk nemenda sem eiga sérstakt hrós skilið gerð sýnileg. Vísa veginn, hvetja til árangurs og kveikja hugmyndir. Hefur gefið góða raun hjá þeim er hafa nýtt sér.
Bekkjarreglur - Með og án texta
Tvö skjöl
Bekkjarreglur_1 - með 6 góðum gildum fyrir námsfólk.
Bekkjarreglur_1_Blank - Settu inn þinn eigin texta.
Berlínarmúrinn
Af spjöldum mannkynssögunnar.
Fróðleikur, lesskilningur, ritun og textarýni og upplýsingaleit.
Texti um Berlínarmúrinn ásamt lesskilningsverkefni og orðarýni.
Hægt að hala niður texta með stærra letri.
Billie Jean King og bardagi kynjanna
Af spjöldum mannkynssögunnar.
Fróðleikur, lesskilningur, ritun og textarýni og upplýsingaleit.
Texti um tenniskempuna og baráttukonuna Billie Jean King ásamt lesskilningsverkefni og orðarýni.
Bingó - fyrir framan
Bingó með rími
Blokkin á heimsenda - Að skrifa kjörbókarritgerð í FIMM skrefum
Hér er á ferðinni snjallt verkefni sem samþættir bókmenntir, lestur/lesskilning, hlustun, ritun og tjáningu um leið og nemendur læra að setja saman stutta kjörbókarritgerð í 5 einföldum skrefum.
1. skref: Kveikja. Hlusta á upplestur á fyrstu síðum bókarinnar: https://blokkinaheimsenda.net/verkefni-og-itarefni/
2. skref: Kynna bókina og gera lestraráætlun fyrir nemendur. / Lesa bókina fyrir bekkinn. / Sitt lítið af hvoru.
3. skref: Vinna verkefnablöðin samhliða lestri.
4. skref: Nýta umræðupunktana og stýra bekkjarumræðum um söguna.
5. skref: Fara yfir leiðbeiningar um kjörbókarritgerð með nemendum og hvetja þá til að hefjast handa.
Nemendur lesa eða hlusta á verðlaunabókina Blokkin á heimsenda eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Samhliða lestri/hlustun vinna nemendur fjögur einföld verkefnablöð. Öll verkefnablöðin má nota sjálfstætt, en í þeim býr meira en er augljóst við fyrstu sýn. Ef nemendur fylla út vinnublöðin sem eru númeruð frá eitt til fjögur hafa þeir, án þess að átta sig á því, unnið megnið af vinnunni fyrir kjörbókarritgerð.
Nemandi sem hefur þessi fjögur blöð til hliðsjónar, auk leiðbeininganna um kjörbókarritgerð, getur skrifað heildstæða ritgerð sem bæði dregur fram efnisatriði bókarinnar og skoðanir nemandans á henni.
Á vef bókarinnar https://blokkinaheimsenda.net/ er að finna fleiri skemmtileg verkefni og upplýsingar um höfunda.
Í pakkanum er að finna kennsluleiðbeiningar, umræðupunkta, verkefnablöð og leiðbeiningar fyrir nemendur um gerð kjörbókarritgerðar.
Hugtök: Sögusvið, innri tími , ytri tími, aðal- og aukapersónur, söguþráður / atburðarás, gagnrýni, útdráttur.
Borðspjöl fyrir stafaspil
Bragfræði - Myndmál
Stuðlun, rím, viðlíking, persónugerving, myndhverfing og hljóðlíking.
Bragfræði - Rím
UM OKKUR
ÁSKRIFT
SKILMÁLAR
BÓKHLAÐAN
LESTRARBÆKUR - VEGVÍSIR
FRÍTT EFNI





