Einstaklingar

Einstaklingar geta keypt áskrift til eins árs í senn með því að skrá sig
Ársárskrift fyrir einstaklinga:   27.500 kr.

Hægt er að greiða áskrift með millifærslu eða með greiðslukorti.
Örugg kortaviðskipti
 
 
Greiðsluupplýsingar
331-13-301500
kt. 660811-1170
 

Skilmálar 
Einstaklingsáskrift  123skoli.is.

  • Með því að gerast áskrifandi að vef Fróðleiks slf, 123skoli.is, samþykkir þú einnig skilmála fyrirtækisins
    og skuldbindur þig til árs áskriftar. Að ári liðnu lokast fyrir aðgang að vefsíðunni nema óskað sé eftir áframhaldandi áskrift. 
    Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi vefinn 123skoli.is  eða skilmála hans vinsamlega sendu þá tölvupóst til Fróðleiks slf. á netfangið frodleikur@123skoli.is.

     
  • Allt efni vefsíðunnar 123skoli.is, er verndað af ákvæðum höfundarlaga nr. 73 frá 1972 sem og öðrum gildandi lögum og reglugerðum er varða eignarrétt höfunda.
    Fróðleikur slf. er eigandi alls efnis sem birt er á síðunni 123skoli.is nema annað sé sérstaklega tekið fram. Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.

     
  • Efni vefsíðunnar, 123skoli.is, er eingöngu ætlað til notkunar fyrir þann einstakling sem keypt hefur áskrift af vefnum og nemendur hans. Ekki er heimilt að veita öðrum aðgang að síðunni eða deila efni með öðrum.  Heimilt er að prenta út efnið og ljósrita það til fyrirlagnar fyrir nemendur þess sem áskrifandi er að vefsíðunni 123skoli.is.
     
  • Ekki er heimilt að geyma efnið útprentað né vista það á tölvutæku formi, áframsenda það, né dreifa efni sem birt er á vefsíðunni til þriðja aðila, selja það né endurvinna eða nota það á annan hátt, nema með skriflegu leyfi höfunda.
     
  • Fróðleikur slf. áskilur sér rétt til þess að fjarlægja efni af síðunni eða gera breytingar á því án nokkurs fyrirvara.
     
  • Val áskrifanda á efni til notkunar af vefnum 123skoli.is er algjörlega á hans eigin ábyrgð. Það er einnig á ábyrgð áskrifandans að velja efni sem mætir þörfum nemenda hans. Fróðleikur slf. getur ekki ábyrgst val áskrifandans á námsefni.
     
  • Fróðleikur slf. hvetur þá sem nýta sér efni af vefnum 123skoli.is, að lesa vandlega yfir það áður en það er lagt fyrir nemendur. Þrátt fyrir að allt efni sem sett er á vefinn sé vandlega yfirfarið áður en það er birt geta slæðst inn villur. Notendur eru hvattir til að láta ritstjóra vefsíðunnar 123skoli.is vita á netfangi: frodleikur@123skoli.is ef vart verður við villur.