Sía efni
Aldursstig
Önnur merki

Af hverju ég? Verkefnasafn

HEIMASÍÐA HÖFUNDAR OG VERKEFNASAFN Fjölbreyttur og skemmtilegur verkefnapakki í tengslum við bókina Af hverju ég?

PDF, 50 bls.

Skráðu þig inn til að sækja efnið

Innskráning

Er skólinn þinn ekki með áskrift? Kynntu þér áskrift

HEIMASÍÐA HÖFUNDAR OG VERKEFNASAFN

Fjölbreyttur og skemmtilegur verkefnapakki í tengslum við bókina Af hverju ég? eftir rithöfundinn og grunnskólakennarann Hjalta Halldórsson.

Bókin segir frá Agli, ungum dreng sem elst upp í Borgarnesi. Hann á ekki sjö dagana sæla þar sem hann á það til að lenda í vandræðum, eða veseni eins og hann kallar það sjálfur. Sjálfur vill hann þó meina að árekstrar hans við skólafélaga og fjölskyldumeðlimi séu alls ekki sér að kenna. Þvert á móti sé hann betur gefinn en flestir samferðamenn sínir en þrátt fyrir það lendir hann fyrir sakir óheppni sinnar og ósanngirni annarra í veseni.