Sía efni
Aldursstig
Önnur merki

Málshátta samstæðuspil

Í skjalinu sem er 4 A4 blöð eru 24 algengir málshættir.

PDF, A4, 4 bls.

Skráðu þig inn til að sækja efnið

Innskráning

Er skólinn þinn ekki með áskrift? Kynntu þér áskrift

Í skjalinu sem er 4 A4 blöð eru 24 algengir málshættir. Hver málsháttur er í litlum ramma.

Ekki er nauðsynlegt að nota alla málshættina í einu.

Skemmtilegt er að lljósrita á lituð blöð eins ef búa á til fleiri en eitt sett er upplagt að hafa hvert sett í sínum lit.. Best er að hafa blöðin í dökkum lit til þess að stafirnir sjáist ekki í gegn.

Spjjöldin verða mun eigulegri ef þau eru plöstuð.

Notkunarmöguleikar:

Samstæðuspil.

Ljósritið tvö eintök af hverjum málshætti. Hafið blöðin í sama lit.

Stokkið spjöldin og leggið þau á hvolf á sléttan flöt (gólf / borð).

Nemendur skiptast á að draga og reyna að fá samstæðu.

Veiðimaður

Ljósritið fjögur eintök af hverjum málshættir. Hafið blöðin í sama lit.

Ef allir málshættirnir eru notaðir eru þeir lagðir á hvolf á sléttan flöt (gólf / borð). Hver nemandi dregur

4 spjöld til að byrja með á hendi. Nemendur skiptast á að spyrja hvor annan um málshátt sem spyrjandinn er með á hendi. Ef mótspilari á málshattinn gefur hann spyrjandanum spjaldið annars fær spyrjandinn að veiða.

Það þarf fjóra eins til að fá slag.
Ef notaðir eru færri málshættir draga nemendur 2 eða 3 spil í byrj

Spil sem er mjög hentugt fyrir unga nemendur og þá sem eru að byrja að læra um málshætti.