Námsgagnaveitan 123skóli er hugarfóstur grunnskólakennara og námsefnishöfunda sem hafa óbilandi áhuga á skólamálum og starfa með það að leiðarljósi að auka fjölbreytni og framboð námsefnis á íslensku.
Vefurinn er áskriftarvefur. Sveitarfélög, leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar, félagasamtök og einstaklingar geta keypt aðgang. Upplýsingar um áskrift.
Efnið á vefnum nýtist nemendum á öllum aldri, jafnt í bekkjarkennslu, sérkennslu, hópavinnu, sjálfsnámi og heimanámi. Námsefnið hefur auk þess nýst þeim vel er læra íslensku sem annað tungumál.
Metnaður er lagður í að framleiða gott og vandað námsefni þar sem fagleg vinnubrögð og fjölbreytt framsetning efnis er í fyrirrúmi. Íslenska er í forgrunni en samþætting við aðrar námsgreinar og heildstæð verkefni skipa einnig stóran sess.
Höfundar og hönnuðir efnis á 123skóla hafa allir reynslu af kennslu í grunn- eða framhaldsskólum.
Hugmyndir og ábendingar
123skoli.is er í stöðugri vinnslu. Allar hugmyndir og ábendingar eru vel þegnar: frodleikur@123skoli.is.
Fróðleikur slf.
frodleikur@123skoli.is
Kt. 660811-1170